Rauðka

Bítlavinafélagið – tónleikar á Kaffi Rauðku 26 ára afmælistónleikar Bítlavinafélagsins – fyrsta sinn á Sigló á þessari öld. Bítlavinafélagið þekkja

Bítlavinafélagið – tónleikar á Kaffi Rauðku

26 ára afmælistónleikar Bítlavinafélagsins – fyrsta sinn á Sigló á þessari öld.
Bítlavinafélagið þekkja flestir íslendingar en bandið tók sín fyrstu skref í ársbyrjun árið 1986 þar sem þeir félagar Jón Ólafsson, Rafn Jónsson, Haraldur Þorsteinsson, Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hjörleifsson komu saman. Í janúar árið 1990 hélt hljómsveitin sín síðustu böll í Hollywood og kemur nú fyrst aftur saman undir nafni Bítlavinafélagsins.

Félagarnir munu stíga á stokk á Kaffi Rauðku föstudaginn 27. janúar 2012 og hefjast tónleikarnir klukkan 22:00 en húsið verður opnað klukkan 21:00.

Flytja þeir lög John Lennon, 12 íslensk bítlalög og að sjálfsögðu Danska lagið.

Forsala aðgöngumiða hefst í Kaffi Rauðku á hádegi miðvikudaginn 11. janúar og kostar miðinn 2.900kr.

Hverjir kannast ekki við Danska lagið, Léttur í lundu, Þrisvar í viku og Undarlegt með unga menn.



Danskalagið


Þrisvar í viku


Dimmar Rósir


Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Póstlisti

Auglýsingar

siglo.is

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf