Flýtilyklar
Mikið á döfinni hjá Rauðku
29.11.11 | 15:03 - Lestrar 15
Jólahlaðborð, veislur og tónleikar á næsta leiti hjá Rauðku. Það er ávalt nóg um að vera á Rauðkutorgi og ekkert
lát er á því næstu vikurnar en næstu helgi er jólahelgi Hannes Boy þar sem gestir geta gætt sér á gómsætu
jólahlaðborði sem er engu líkt.
Þann níunda og ellefta des verður síðan stórtónleikahelgi á Kaffi Rauðku með þeim glæstu hljómsveitum GRM á
föstudeginum og Hjálmum, Baggalút og Memfismafíunni á sunnudeginum.


