Flýtilyklar
Rauðka ehf verðlaunað af Markaðsstofu Noðrurlands
12.11.11 | 01:01 - Lestrar 78
Markaðsstofa Norðurlands verðlaunaði Rauðku ehf. fyrir þá uppbyggingu sem fyrirtækið hefur staðið að í ferðaiðnaðinum
síðastliðin ár. Viðurkenningin sem er mikill heiður fyrir Rauðku að taka við var veitt fyrir fagleg vinnubrögð í uppbyggingu
ferðaþjónustu á svæðinu.
Fyrirtækið fékk viðurkenninguna afhenta á uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar sem haldin var á utanverðum Eyjafirði en endað var í Kaffi Rauðku þar sem veislan var haldin. Var þetta stærsta uppskeruhátíð ferðaþjónustuaðila til þessa en um 130 manns mættu í hófið á Rauðkunni þar sem Gómar slógu í gegn með frábærri skemmtun og Stúlli og Dúi spiluðu svo fyrir dansi á eftir.