Flýtilyklar
Rauðkubíó - Jón og séra Jón 21:00
05.11.11 | 21:09 - Lestrar 60
Kvikmyndin Jón og séra Jón hefur slegið rækilega í gegn á klakanum síðastliðnar vikur en myndin vann áhorfendaverðlaun
Skjaldborgarhátíðarinnar sem kölluð er Einarinn. Myndin verður sýnd í Rauðkubíói laugardaginn 5. október klukkan 21:00.
Steinþór Birgisson gerði myndina og tók það hann sjö ár að vinna hana en myndin fjallar um hina sérkennilegu persónu Jóns sem er einmana bóndi og prestur á Vestfjörðum með sókn sem telur 47 manns.
Sóknarbörnunum líkar illa við prest sinn og ekki alltaf að ósekju, þarsem hann er sérlundaður. Þau bola honum á brott og að mati Jóns og séra Jóns er það vegna girndar í hlunnindin sem jörðinni hans fylgja.
Af myndinni að ráða virðist það samt ekki vera eina ástæðan.