Flýtilyklar
Tónleikar blúshátíð – Contalgen Funeral Kaffi rauðka
28.06.12 | 21:09 - Lestrar 49
Contalgen Funeral er Skagfirsk hljómsveit sem var stofnuð af Andra Má Sigurðssyni fyrir nokkrum árum síðan, en núverandi mynd sveitarinnar hefur
verið starfandi í um ár. Hljómsveitin spilar Blússlegið rokk og hefur verið flokkað undir “rónarokk”.
Öll hafa þau góðan tónlistarlegan bakgrunn og spilað víða í sitthvoru lagi. Hljómsveitin hefur spilað
víða og vakið þónokkra athygli og spilað víðsvegar um landið. T.d. Á Gærunni, Iceland Airwaves, Græna hattinunum og túrað
á minni staði svo sem Sauðárkróki (þaðan sem hljómsveitin starfar), Blönduósi, Skagaströnd og Ólafsfirði ásamt
mikið af öðrum stöðum.
Contalgen Funeral
Andri Már Sigurðssoon, söngur og gítarbanjó
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, söngur, bakraddi, skeiðar og greiða
Gísli Þór Ólafsson, sontrabassi og bakraddir
Kristján Vignir Steingrímsson, gítar
Sigfús Arnar Benediktsson, trommur og annað slagverk
Bárður Smárason, básúna





