Rauðka

Rauðka hefur nú standsett Kaffi Rauðku; kaffihús, bar og stóran fjölnota veitingasal við smábátahöfnina. Kaffihúsið og barinn eru staðsett í suðurenda

Kaffi Rauðka

Rauðka hefur nú standsett Kaffi Rauðku; kaffihús, bar og stóran fjölnota veitingasal við smábátahöfnina.



Kaffihúsið og barinn eru staðsett í suðurenda hússins þar sem gestir hafa útsýni yfir smábátahöfnina og leiksvæði Rauðku þar sem krakkar spila minigolf og leika sér með flugdreka. Þar geta þyrstir, hungraðir og skemmtanaglaðir vegfarendur gætt sér á svalandi öli, rjúkandi heitu kaffi og gómsætu brauði. Á barnum er síðan lifandi tónlist með skemmtilegri trúbadorstemmningu sem allir geta notið samkvæmt auglýstri dagskrá um helgar.

Í norðurhluta Rauðku er veislusalur með sæti fyrir um 90-110 matargesti, þar er reiddur fram hágæða matur að hætti Hannesar Boy. Á efri hæð norðurendans er minni aðskilinn salur sem hægt er að nota til fundarhalds, lítilla veisla, eða jafnvel sem framlenging á stóra salnum niðri.

Í salarkynnum neðri hæðarinnar er skemmtanahald í hávegum haft og mikið lagt uppúr sérstæðri upplifun fyrir alla aldurshópa með skemmtilegri og lifandi tónlist og öðrum uppákomum. Í salnum er fullkomið tónleikakerfi fyrir hljómsveitir og er hann einstaklega vel fallinn til tónleikahalds og rúmar um 150-180 manns á þesslags viðburði.




Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Póstlisti

Auglýsingar

siglo.is

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf