Flýtilyklar
Störf í boði hjá Rauðku
Framreiðslumaður í Hannes Boy
Laus er staða framreiðslumanns í Hannes Boy. Umsækjendur þurfa að hafa sveinsréttindi í greininni og/eða langa reynslu af þjónastörfum.
Sumarstarfsfólk
Nú er Rauðka í óða önn að ráða inn starfsfólk fyrir sumarið 2012. Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 18 ára aldri, sé samviskusamur og hafi sjálfstæð vinnubrögð. Leitum við bæði af fólki í fulla vinnu ásamt duglegu fólki í helgar og kvöldvinnu. Umsækjendur um sumarstörf hjá Rauðku eru beðnir um að fylla út almenna starfsumsókn og senda á raudka@raudka.is
Almenn starfsumsókn
Hér má sækja umsóknareyðublað fyrir störf hjá Rauðku ehf.
Vinsamlegast fyllið skjalið út, vistið það og sendið á raudka@raudka.is

