Rauðka

Rauðka ehf. er einkahlutafélag á Siglufirði. Eigendur Rauðku líta á félagið sem farveg fyrir umbreytingar í Fjallabyggð og er þá sérstaklega horft til

Um Rauðku

Rauðka ehf. er einkahlutafélag á Siglufirði. Eigendur Rauðku líta á félagið sem farveg fyrir umbreytingar í Fjallabyggð og er þá sérstaklega horft til vaxandi ferðamennsku í kjölfarið á nýjum jarðgöngum sem bæta tengingar Siglufjarðar við Eyjafjarðarsvæðið.

Framtíðarsýn Rauðku byggir á nánu samstarfi við tvö vel heppnuð söfn á Siglufirði, Síldarminjasafn Íslands og Þjóðlagasafn sr. Bjarna Þorsteinssonar.
SKSiglo ehf., systurfyrirtæki Rauðku, rekur fréttasíðuna siglo.is og Ljósmyndasafn Siglufjarðar, eitt stærsta ljósmyndasafn í einkaeigu á Íslandi. Einnig á Rauðka hlut í Valló ehf. sem rekur skíðasvæðið á Siglufirði.

Siglufjörður hefur svo sannarlega upp á margt að bjóða og leggur Rauðka metnað sinn í að gera ferðafólki kleyft að njóta náttúru hans og bæjarlífs. Gott skíðasvæði og nálægð við öflug fiskimið til sjóstangveiða gefa verkefninu einnig fjölbreytni.

Rauðka byggir aðstöðu sína upp í kringum smábátahöfnina á Siglufirði. Þar hafa starfsmenn fyrirtækisins unnið hörðum höndum undanfarin ár við að gera upp gömul hús sem ætlunin er að nýta undir starfsemi Rauðku. Smábátahöfnin hefur þá sérstöðu að vera nánast inn í miðbæ Siglufjarðar sem gefur allri umgjörð Rauðku sérstakan blæ.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Póstlisti

Auglýsingar

siglo.is

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf