Rauðka

Rauðka tekur vel á móti hópum, stórum sem smáum. Í húsakynnum fyrirtækisins við smábátahöfnina má finna fjölbreytt úrval veislusala. Í norðurhluta

Veislur

Rauðka tekur vel á móti hópum, stórum sem smáum. Í húsakynnum fyrirtækisins við smábátahöfnina má finna fjölbreytt úrval veislusala.

Í norðurhluta Kaffi Rauðku er glæsilegur salur með sæti fyrir allt uppí 90-130 manns. Salurinn er tilvalinn fyrir ýmiskonar uppákomur, líkt og brúðkaup, árgangsmót, afmæli, árshátíðir og margt fleira. Salurinn hefur að geyma hágæða hljóðkerfi og skjávarpa. 
Á efri hæð Kaffi Rauðku má finna lítinn hlýlegan sal sem er tilvalinn fyrir minni fundi eða einfaldlega til að koma saman í góðra vina hópi. Í salnum má finna hágæða hljóðkerfi og skjávarpa, þæginleg leðursófasett og notarlegan steinhlaðinn arinn.
Bláa húsið er fjölnota salur sem er tilvalinn fyrir minni veislur, ráðstefnur eða jafnvel kokteilboð. Í salnum er að finna hágæða hljóðkerfi, skjávarpa ásamt 4 metra breiðu tjaldi.


Hér má sjá lista yfir algengustu hópaseðla Rauðku:


Rauðka er ávalt tilbúin til að koma til móts við sértakar óskir. Til að fá upplýsingar um hvað annað við höfum uppá að bjóða, endilega hafið samband við yfirmatreiðslumann í neðangreint póstfang eða símanúmer.

eldhus(hjá)raudka.is
852-3730
Ath. Allir salir Rauðku eru leigðir út með veitingum

Mynd augnabliksins

Póstlisti

Auglýsingar

siglo.is

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf